Skilamálar

Greiðslufyrirkomulag við bókun í bjórbað

  • Tekið er við greiðslu við bókun. Allar upphæðir eru í íslenskum krónum.

  • Athugið að verð geta breyst án fyrirvara.

  • Þegar þú bókar á heimasíðu Bjórbaðanna færðu sendan E-miða í tölvupósti. Þessum miða þarf að framvísa við komu í Bjórböðin svo mikilvægt er að prenta miðann út eða hafa hann aðgengilegan í símanum.

  • Hvern miða er einungis hægt að nota einu sinni.

  • Þegar bókað er á heimasíðunni ertu beðinn um að velja dagsetningu og tímasetningu komu þinnar. E-miðinn gildi eingöngu á því tímabili sem þú velur í bókunarferlinu.

Breyting á bókun

  • Ef þú vilt breyta einhverju í bókun sem hefur verið greidd fyrir og staðfest, þá áskilur Bjórböðin sér rétt til að rukka 1.000 kr breytingargjald. Ef þú vilt breyta bókum, skal beiðnin berast á bookings@bjorbodin.is.

Afbókanir

Allar afbókanir skulu vera sendar skriflega til Bjórbaðanna, með því að senda á netfangið bookings@bjorbodin.is.

  • 90% af verði bókunar er endurgreitt, ef bókun berst með meira en 3 daga fyrirvara.

  • 50% af verði bókunar er endurgreitt, ef afbókun berst með 24-72 klst fyrirvara.

  • Ekkert er endurgreitt ef afbókum berst með minna en 24 klukkustunda fyrirvara.

Bjórböðin áskilur sér rétt til að breyta eða ógilda alla bókanir ef upp koma óviðráðanlegar aðstæður sem valda þess að Bjórböðin geti ekki sinnt sinni reglubundni starfssemi. Aðstæður eins og verkföll, náttúruhamfarir, veður eða sambærilegra aðstæðna sem gætu valið tímabundinni lokun. Ef bókun er breytt af hálfu Bjórbaðanna átt þú rétt á fullri endurgreiðslu.

Borga á staðnum

  • Ef þú velur að borga á staðnum / pay on arrival, gerir þú hið sama og fyrir ofan. Prentar út E – miða sem sendist á netfangið þitt.

  • Bjórböðin áskilur sér rétt til að rukka fyrir bókunina fullt gjald ef ekki er afbókað á réttum tíma (sjá Afbókanir fyrir ofan) eða ekki mætt í þann tíma sem bókað er í.

Gjafabréf, kaup, afhending og greiðsla

  • Gjafabréf eru aðeins seld í afgreiðslu Bjórbaðanna.

  • Hægt er að kaupa gjafabréf í afgreiðslu, í gegnum síma eða tölvupóst á bjorbodin@bjorbodin.is

  • Hægt er að sækja gjafabréf í afgreiðslu eða fengið sent með Íslandspósti.

  • Sending á gjafabréfum er innifalin í kaupum nema kaupandi óski eftir að skrá sendingu og greiðir því kaupandi þann kostnað.

  • Gjafabréf eru send innan tveggja virkra daga. Sé pöntun gerð um helgi eða á frídegi, fer það í póst næsta virka dag á eftir. 

Vörukaup, afhending og skil

  • Vörur eru seldar í afgreiðslu, í síma eða á bjorbodin@bjorbodin.is

  • Hægt er að sækja vörur í afgreiðslu eða fengið sent með Íslandspósti og er sending greidd af kaupanda.

  • Vörur eru sendar með Íslandspósti innan tveggja virkra daga. Sé pöntun gerð um helgi eða á frídegi, fer hún í póst næsta virka dag á eftir. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur og kaupandi greiðir sendingargjald þegar vöru er skilað. Ef pakki er ekki sóttur á pósthús áksilur seljandi sér rétt til að halda eftir kostnaði við sendingar.

  • Ekki er hægt að skila vöru nema um gallaða eða ranga vöru sé um að ræða.

  • Greiðsla fer fram með millifærslu eða greiðslukorti: Visa eða Mastercard.

Verð

  • Öll verð eru í Íslenskum krónum og með vsk.

  • Bjórböðin áskilur sér rétt á að breyta verðum án fyrirvara.

Ábyrgð og reglur

  • Gestir fara í Bjórböðin á eigin ábyrgð og bera ábyrgð á börnum sem eru í þeirra fylgd.

  • Hver og einn tekur ábyrgð á eigin heilsufari.

  • Engin ábyrgð er tekin á verðmætum sem gestir kunna að hafa með sér.

  • Vinsamlegast athugið að gólf geta verið hál og/eða blaut.

  • Athugið að Bjórböðin eru staðsett við sjóbakka.

  • Athugið að lækur er staðsettur 200 metra frá Bjórböðunum.

Trúnaður

  • Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing

  • Um þjónustuviðskipti gilda skilmálar sem eru í lögum um þjónustukaup nr 42/2000.

Um fyrirtækið

Bjórböðin ehf
Kt. 540715 – 1140
VSK nr. 124335
Ægisgata 31
621 Dalvík
Sími: 414 2828 / 414 1942
bjorbodin@bjorbodin.is 

Bjórböðin áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara.